Vörur

Ölgerðin framleiðir, flytur inn, dreifir og selur drykkjarvörur og matvæli um allt land. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri.

Fréttir

Ölgerðin hlýtur Sjálfbærniásinn 2025

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur hlotið viðurkenningu Sjálfbærniássins árið 2025.  Annað árið í röð skoraði Ölgerðin hæst í flokki framleiðslufyrirtækja á Íslandi og fyrir það er starfsfólk fyrirtækisins afar þakklátt og stolt. Viðurkenningin er dýrmæt hvatning fyrir Ölgerðina sem hvetur okkur áfram að gera enn betur og styrkir trú okkar að við séum á réttri leið í sjálfbærnivegferð okkar.
Markmið Sjálfbærniássins er að veita samanburðarhæfar og hlutlausar upplýsingar um viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja og stofnana í sjálfbærni.
Þetta er í annað sinn sem viðurkenning Sjálfbærniássins er veitt. Mælikvarðinn er þróaður af rannsóknarfyrirtækinu Prósent, ráðgjafafyrirtækinu Langbrók og stjórnendafélaginu Stjórnvísi.

 

 

Sjá nánar
Kristall+ koffín, D-vítamín & sink er kominn á markað!

Kristall+ hefur litið dagsins ljós í allri sinni dýrð. Léttkolsýrt íslenskt bergvatn, 80mg af koffini, D-vítamín og sink er eitthvað sem okkur öllum hefur vantað. Drykkurinn inniheldur engan sykur né sætuefni og er hann því tærasta leiðin að náttúrulegri virkni.

 

Sjá nánar á Facebook Kristall+

Sjá nánar
Öl­gerðin ræður tvo markaðs­stjóra

Elísabet Austmann og Bergsveinn Guðmundsson hafa tekið við nýjum stöðum markaðsstjóra hjá Ölgerðinni. Elísabet hefur tekið við stöðu markaðsstjóra óáfengra drykkja og Bergsveinn markaðsstjóra áfengra drykkja.

 

Sjá nánar frétt á Visir.is 

Sjá nánar

Hafa samband

Hér getur þú komið á framfæri fyrirspurn, hrósi, ábendingu um gæðamál eða styrktarbeiðni. Ölgerðin hefur sett sér stefnu um meðhöndlun erinda með það að markmiði að stuðla að aukinni ánægju viðskiptavina, gagnsæi og skilvirkni. Leitast er við að svara erindum eins fljótt og hægt er og markmið Ölgerðarinnar er að svara innan 2 virkra daga frá móttöku á erindi. Vegna fjölda styrktarbeiðna tökum við aðeins á móti beiðnum sem koma í gegnum umsóknarformið hér að neðan, styrkir eru ekki afgreiddir í gegnum síma eða tölvupóst beint á starfsmenn.

SENDA INN
Subpage Theme Image
Sjálfbærni

Ölgerðin hefur mikinn metnað á sviði sjálfbærni og er markvisst að innleiða sjálfbærni í menningu fyrirtækisins. Til að ná framtíðarsýn fyrirtækisins um að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda þarf að huga að sjálfbærni í allri virðiskeðjunni. 

SJÁ MEIRA
VR Fyrirmyndarfyrirtæki Jafnlaunavottun BSI Vottanir LEED Vottanir
OSZAR »